Jose Mourinho stjóri Manchester United er sagður íhuga það alvarlega að setja Paul Pogba og Alexis Sanchez á bekkinn um næstu helgi.
United mætir þá Tottenham í undanúrslitum enska bikarsins.
United tapaði gegn West Brom um liðna helgi og mætir Bournemouth á morgun fyrir leikinn gegn Spurs.
Pogba og Sanchez voru ásamt fleirum slakir um liðna helgi en Telegraph fjallar um málið.
Framtíð Pogba hjá United virðist vera í óvissu eftir slakar frammistöður eftir áramót.