Stór hluti stuðningsmanna Everton óskar sér þess að Sam Allardyce verði rekinn úr starfi í sumar.
Allardyce tók við Everton í vetur eftir að Ronald Koeman var rekinn úr starfi.
Honum hefur mistekist að heilla stuðningsmenn Everton og eigendur félagsins vita af því.
Ársmiðahafar voru beðnir um að svara spurning um hvort Allardyce væri rétti maðurinn til taka réttar ákvarðarnir fyrir félagið.
Gefinn var skali frá 1-10 og með þessu vill félagið skoða betur hvað stuðningsmenn eru að hugsa.
Stóri Sam hefur verið án Gylfa Þórs Sigurðssonar síðustu vikur en hann er frá vegna meiðsla á hné.