Barcelona missteig sig á útivelli gegn Celta Vigo í La Liga á Spáni í kvöld.
Lionel Messi byrjaði sem varamaður og Luis Suarez var einnig á bekknum.
Það var Ousmane Dembele sem kom Börsungum yfir í fyrri hálfleik áður en Jonny Castro jafnaði fyrir heimamenn á lokamínútu fyrri hálfleiks.
Paco Alcácer kom Barcelona aftur yfir á 64 mínútu en nokkrum mínútum síðar fékk Sergi Roberto rauða spjaldið.
Það var dýrkeypt því á 84 mínútu leiksins skoraði Iago Aspas og kom í veg fyrir sigur Börsunga.
Þetta hefur þó ekki mikil áhrif enda er Barcelona með 12 stiga forskot á toppi deildarinnar.