fbpx
Laugardagur 20.apríl 2024
433

Mun liggja fyrir í lok árs hvað verður gert við Laugardalsvöll

Hörður Snævar Jónsson
Mánudaginn 16. apríl 2018 13:46

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Starfshópur sem ríkið og Reykjavíkurborg skipaði 11. janúar sl. um uppbyggingu Laugardalsvallar hefur nú skilað af sér niðurstöðum. Hópurinn fór yfir hugmyndir um þjóðarleikvang fyrir knattspyrnu, lagði mat á þær og gerði tillögur um mögulega uppbyggingu.

Þá hefur ríkisstjórn, borgarráð og stjórn KSÍ samþykkt að stofna undirbúningsfélag um mögulega framkvæmd. Undirbúningi fyrir ákvörðun um uppbyggingu Laugardalsvallar skal lokið fyrir lok árs 2018.

Nánar má lesa um málið á Eyjunni.

Helstu niðurstöður starfshópsins eru eftirfarandi:
Margt mælir með því að núverandi þjóðarleikvangur í Laugardal verði endurnýjaður.
Ríkið, Reykjavíkurborg og KSÍ stofni undirbúningsfélag um mögulega framkvæmd og taki upp viðræður um eignarhald á þjóðarleikvangnum.
Undirbúningsfélagið bjóði út samning um endanlega þarfagreiningu, skipulagningu verkefnisins, kostnaðaráætlun og gerð útboðsgagna.
Þjóðarleikvangur getur hvort heldur sem er verið opinn knattspyrnuvöllur eða fjölnotaleikvangur með opnanlegu þaki.
Kostnaður og áhætta við fjölnotaleikvang er vel umfram kostnað og áhættu við opinn knattspyrnuvöll.
Ákvörðun um byggingu og eignarhald þjóðarleikvangs verði tekin með hliðsjón af niðurstöðu vinnu undirbúningsfélags og stöðu opinberra fjármála.
Áætlað er að undirbúningi fyrir ákvörðun verði lokið í lok árs 2018.
Verði tekin ákvörðun um byggingu þjóðarleikvangs getur útboðsferli framkvæmda tekið frá nokkrum mánuðum og upp undir eitt ár og framkvæmdatími verið að minnsta kosti tvö ár.
Huga verður að mögulegu fordæmi ákvörðunar um byggingu þjóðarleikvangs fyrir aðrar íþróttagreinar með hliðsjón af væntanlegri reglugerð um þjóðarleikvanga.
Hvetja ætti til opinnar umræðu um byggingu þjóðarleikvangs á grundvelli þeirra ítarlegu gagna sem tekin hafa verið saman á undanförnum misserum.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Hvalur sprakk í tætlur

Nýlegt

433Sport
Fyrir 6 klukkutímum

Ten Hag neitar að gefast upp á sínum manni – ,,Hef fulla trú á þessum bardagamanni“

Ten Hag neitar að gefast upp á sínum manni – ,,Hef fulla trú á þessum bardagamanni“
433Sport
Fyrir 6 klukkutímum

Nýtti sér úrslit vikunnar og skaut fast á gagnrýnendur

Nýtti sér úrslit vikunnar og skaut fast á gagnrýnendur
433Sport
Fyrir 18 klukkutímum

Rúnar Már mættur í ÍA

Rúnar Már mættur í ÍA
433Sport
Fyrir 18 klukkutímum

Voru gapandi hissa yfir sjónvarpinu í vikunni – „Ég veit ekki hvað fer í gegnum hausinn á þér“

Voru gapandi hissa yfir sjónvarpinu í vikunni – „Ég veit ekki hvað fer í gegnum hausinn á þér“
433Sport
Fyrir 21 klukkutímum

Tottenham vill fyrrum leikmann Arsenal

Tottenham vill fyrrum leikmann Arsenal
433Sport
Fyrir 21 klukkutímum

Allir þrír leikmenn klárir fyrir United

Allir þrír leikmenn klárir fyrir United
433Sport
Í gær

Þetta stendur á veggnum þegar leikmenn City fara á æfingar

Þetta stendur á veggnum þegar leikmenn City fara á æfingar
433Sport
Í gær

Garnacho bað Ten Hag afsökunar – „Hann verður að læra mikið og hratt“

Garnacho bað Ten Hag afsökunar – „Hann verður að læra mikið og hratt“