Manchester United sá til þess að í dag varð Manchester City enskur meistari. United tók á móti West Brom á heimavelli, slakasta liði ensku úrvalsdeildarinnar.
City vann Tottenham í gær og með tapi United í dag er liðið orðið enskur meistari þegar fimm leikir eru eftir. United átti afar slakan leik í dag en í fyrri hálfleik hefði liðið átt að fá vítaspyrnu þegar brotið var á Ander Herrera.
Liðið spilaði hins vegar einn af sínum slakari leikjum í vetur og það kom í bakið á þeim á 73 mínútu leiksins þegar Jay Rodriguez tryggði sigur gestanna. Sigur City í deildinni því staðreynd en liðið hefur haft rosalega yfirburði.
City jafnar með þessu met sem Manchester United hefur í tvígang sett og Everton setti einnig með því að vinna deildina þegar fimm leikir eru eftir.
Þetta var síðast gert árið 2001 þegar United varð meistari.
5 – Man City have won the Premier League title with five games remaining; equalling the English top-flight record. They have equalled the efforts of Manchester United (1907-08 and 2000-01) and Everton (1984-85) who all won the top-flight title with five games to spare. Cruise. pic.twitter.com/SbeV1CXB0u
— OptaJoe (@OptaJoe) April 15, 2018