Real Madrid tók á móti Juventus í 8-liða úrslitum Meistaradeildarinnar í gær en leiknum lauk með 3-1 sigri gestanna.
Mario Mandzukic skoraði tvívegis fyrir gestina ásamt Blaise Matuidi en það var Cristiano Ronaldo sem minnkaði muninn fyrir heimamenn á lokamínútum leiksins með marki úr vítaspyrnu og Real fer því áfram í undanúrslit keppninnar, samanlegt 4-3.
Sergio Ramos fyrirliði Real Madrid var í banni í leiknum en hann ákvað að koma sér fyrir rétt við varamannabekkina undir lok leiks.
Það gæti reynst afar heimskuleg ákvörðun en hann gæti fengið aukaleik í bann fyrir þessa hegðun sína.
Mynd af atvikinu er hér að neðan.