Gunnlaugur Jónsson er næsti þjálfari Þróttar en frá þessu segir á fréttavef RÚV.
Gunnlaugur lét af störfum sem þjálfari ÍA síðasta sumar þegar liðið var að falla úr deildinni.
Gregg Ryder hætti störfum í vikunni þegar hann samdi um starfslok við félagið.
Hann deildi við stjórn Þróttar sem neitaði að setja meiri pening í leikmannamál. Ryder vildi styrkja hópinn en fékk ekki bolmagn til þess. Þetta herma heimildir 433.is.
Eftir mikinn hitafund lét Ryder af störfum og mun Gunnlaugur stýra liðinu í 1. deildinni í sumar.