Manchester City tók á móti Liverpool í seinni leik liðanna í 8-liða úrslitum Meistaradeildarinnar í gær en leiknum lauk með 2-1 sigri gestanna.
Það voru þeir Mohamed Salah og Roberto Firmino sem skoruðu mörk Liverpool í leiknum en Gabriel Jesus kom City yfir snemma leiks.
Liverpool vann fyrri leik liðanna 3-0 og fór því áfram með miklum yfirburðum.
Liverpool er komið í undanúrslit en dregið verður á föstudag.
Mikil stemming var í klefa Liverpool eftir leik eins og sjá má hér að neðan.