River Plate 3-1 Boca Juniors
0-1 Dario Benedetto(44′)
1-1 Lucas Pratto(68′)
2-1 Juan Quintero(108′)
3-1 Gonzalo Martinez(120′)
Úrslitaleikur Copa Libertadores fór fram í kvöld en River Plate og Boca Juniors áttust þá við.
Um var að ræða síðari leik liðanna en fyrri leiknum lauk með 2-2 jafntefli á heimavelli Boca.
Það er mikill rígur á milli þessara liða sem leika bæði í Argentínu. Læti stuðningsmanna komu í veg fyrir að síðari leikurinn færi fram í heimalandinu.
Þess í stað var spilað á Santiago Bernabeu á Spáni en það er heimavöllur stórliðsins Real Madrid.
Venjulegum leiktíma í kvöld lauk með 1-1 jafntefli. Útivallarmörk eru ekki tekin með og þurftu liðin að spila framlengingu.
Þar hafði River Plate betur en liðið skoraði tvö mörk gegn tíu mönnum Boca eftir rauða spjald Wilmar Barros.
Þeir Juan Quintero og Gonzalo Martinez skoruðu mörk River sem fagnar 3-1 sigri og er því meistari.