Joachim Low, landsliðsþjálfari Þýskalands, hefur áhuga á að taka við stórliði Real Madrid á Spáni.
Þetta hefur Low sjálfur staðfest en hann býst ekki við að vera landsliðsþjálfari í mörg ár til viðbótar.
Low hefur verið þjálfari Þýskalands frá árinu 2006 en var áður aðstoðarþjálfarinn í tvö ár.
,,Ég þjálfaði félagslið í nokkur ár og ég er ennþá ekki að hugsa um að hætta,“ sagði Low við KDF.
,,Það er augljóst að ég nálgast lokin sem landsliðsþjálfari svo ég þarf bráðum að hugsa hvað ég geri næst.“
,,Ég hef áhuga á að þjálfa félagslið, ég held að það væri félag erlendis. Real Madrid er félag sem allir hafa áhuga á.“