Leigubílasögurnar eru daglegur liður hér á 433.is. Í þessum lið er farið yfir helsta slúðrið og sögusagnirnar úr fótboltanum, aðallega úr bresku pressunni.
Félagaskiptaglugginn hefur lokað en það er samt alltaf fullt af sögum enda hætta erlend blöð aldrei að grafa upp sögurnar sem fljúga.
Hér má sjá pakka dagsins.
Harry Kane er efstur á óskalista Barcelona fyrir næsta sumar en hann er verðmetinn á 200 milljónir punda. (Star)
Paris Saint-Germain vill fá Eden Hazard frá Chelsea í sumar en Real Madrid og Juventus hafa einnig áhuga. (Mirror)
Manchester United þarf að borga meira en 90 milljónir fyrir varnarmanninn Kalidou Koulibaly hjá Napoli. (Times)
Chelsea er að skoða Denis Suarez, leikmann Barcelona sem gæti hleypt Cesc Fabregas til AC Milan. (Calciomercato)
Tottenham er að skoða Lloyd Kelly, 21 árs gamlan varnarmann Bristol City en Manchester United, Arsenal og Liverpool hafa einnig áhuga. (Mirror)
Tottenham hefur einnig áhuga á Tonny Vilhena, leikmanni Feyenoord en hann spilar á miðjunni. (Calciomercato)