fbpx
Föstudagur 19.apríl 2024
433

Berbatov væri til í að mæta leikmanni Arsenal: Þetta sjálfstraust pirrar mig mikið

Victor Pálsson
Sunnudaginn 9. desember 2018 17:02

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Dimitar Berbatov, fyrrum leikmaður Manchester United, hefur fylgst aðeins með Arsenal á þessari leiktíð.

Berbatov er hrifinn af hinum 19 ára gamla Matteo Guendouzi sem fær reglulega að spila hjá félaginu.

Búlgarinn segir að hann verði oft pirraður á því að horfa á Guendouzi vegna sjálfstraustsins sem leikmaðurinn spilar með.

,,Hann er 19 ára gamall en spilar eins og hann hafi verið þarna alla ævi,“ sagði Berbatov.

,,Stundum þegar ég horfi á hann þá langar mig að spila gegn honum því þetta sjálfstraust sem hann er með pirrar mig mikið.“

,,Hann er með svo mikið sjálfstraust á boltanum og er alls staðar á vellinum. Hann er í vítateignum, hinum vítateignum og hleypur án vandræða.“

,,Þú getur verið 19 ára gamall og spilað eins og þú sért 24 ára. Aldur skiptir ekki máli, hann er ótrúlegur.“

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

433Sport
Fyrir 14 klukkutímum

Upptaka af lýsandanum fer eins og eldur í sinu – Hlustaðu á hvað hann gerði í beinni

Upptaka af lýsandanum fer eins og eldur í sinu – Hlustaðu á hvað hann gerði í beinni
433Sport
Fyrir 15 klukkutímum

Ekki komið til tals að reka Sean Dyche

Ekki komið til tals að reka Sean Dyche
433Sport
Fyrir 22 klukkutímum

Netverjar hafa tekið eftir atviki sem sást ekki í sjónvarpi – Hafði líklega mikil áhrif á úrslit gærkvöldsins

Netverjar hafa tekið eftir atviki sem sást ekki í sjónvarpi – Hafði líklega mikil áhrif á úrslit gærkvöldsins
433Sport
Fyrir 22 klukkutímum

Telur að Salah sé fyrir löngu búinn að semja við annað lið en Liverpool

Telur að Salah sé fyrir löngu búinn að semja við annað lið en Liverpool