Manchester United hefur staðfest að Ole Gunnar Solskjær hafi verið ráðinn knattspyrnustjóri liðsins út þessa leiktíð.
Solskjær lék lengi vel með Manchester United og var þá yfirleitt kallaður, morðinginn með barnsandlitið. Í Englandi var Ole Gunnar yfirleitt nefndur sem „The Baby-faced Assassin“, þar var átt við mörk sem hann skoraði iðulega í lok leikja til að ganga frá andstæðingum United
Jose Mourinho var rekinn úr starfi í gær en United ætlar að ráða stjóra til framtíðar, næsta sumar.
Mourinho fékk gríðarlegan stuðning stjórnar félagsins í leikmannakaupum og eyddi hann 369 milljónum punda.
Nokkrir komu frítt en flest af kaupum Mourinho hafa hins vegar misheppnast hjá United, þau styrktu liðið lítið.
Leikmannakaupin:
Pogba: £89m
Lukaku: £75m
Fred: £52m
Matic: £40m
Lindelof: £38m
Bailly: £30m
Mkhitaryan: £26m
Dalot: £19m
Ibrahimovic: Frítt
Sanchez: Frítt
Grant: Frítt
£369m í leikmenn