Stuðningsmaður Chelsea hefur verið ákærður af lögreglunni í Sussex fyrir að gera grín að hommum á leik Chelsea og Brighton.
George Bradley er tvítugur og kemu frá London, hann var mætur á leik liðanna um helgina.
Hann kallaði niðrandi orðum um homma og var með hótanir og fleira í þeirra garð. Hann á að mæta fyrir rétt 3 janúar.
Á dögunum var stuðningsmaður Chelsea settur í bann fyrir kynþáttaníð í garð Raheem Sterling.
Bradley er ekki fyrsti maðurinn sem er með niðrandi orð í garð homma á heimavelli Brighton. Borgin er þekkt fyrir það í Bretlandi, að þar búi mikið af samkynhneigðu fólki.