Manchester United hefur staðfest að Ole Gunnar Solskjær hafi verið ráðinn knattspyrnustjóri liðsins út þessa leiktíð.
Solskjær lék lengi vel með Manchester United og var þá yfirleitt kallaður, morðinginn með barnsandlitið. Í Englandi var Ole Gunnar yfirleitt nefndur sem „The Baby-faced Assassin“, þar var átt við mörk sem hann skoraði iðulega í lok leikja til að ganga frá andstæðingum United
Jose Mourinho var rekinn úr starfi í gær en United ætlar að ráða stjóra til framtíðar, næsta sumar.
Eitt frægasta atvik Solskjær í rauðum búningi kom árið 1998 þegar liðið var að gera 1-1 jafntefli við Newcastle. Langt var liðið á leikinn og skutlaði United öllum fram til að reyna að skora.
Það var ekki að ganga og í eitt skiptið slapp leikmaður Palace einn í gegn. til að koma í veg fyrir að hann myndi skoraði, bombaði Solskjær hann niður.
Hann fékk að launum rautt spjald en stuðningsmenn Manchester United fögnuðu honum sem hetju, hann fékk svakalegt lófaklapp.