Zlatan Ibrahimovic hefur skrifað undir nýjan samning við lið LA Galaxy í bandarísku MLS-deildinni.
Þetta staðfesti félagið í kvöld en Zlatan skrifar undir eins árs framlengingu á samningi sínum.
Sænska goðsögnin kom til Galaxy fyrir síðasta tímabil og gerði 22 mörk í 27 leikjum á fyrstu leiktíðinni.
Hann var orðaður við endurkomu til Evrópu í kjölfarið og þá sérstaklega sitt fyrrum félag, AC Milan.
Það virðist þó ekkert ætla að verða úr því þó að hann gæti farið annað á láni í janúar þar sem deildin í Bandaríkjunum er í pásu.
It’s official. He’s back.#LAGalaxy sign @Ibra_official to new contract: https://t.co/K3TAE2PxKk pic.twitter.com/5pcScYRXQB
— LA Galaxy (@LAGalaxy) 18 December 2018