Leigubílasögurnar eru daglegur liður hér á 433.is. Í þessum lið er farið yfir helsta slúðrið og sögusagnirnar úr fótboltanum, aðallega úr bresku pressunni.
Félagaskiptaglugginn hefur lokað en það er samt alltaf fullt af sögum enda hætta erlend blöð aldrei að grafa upp sögurnar sem fljúga.
Hér má sjá pakka dagsins.
——–
Pep Guardiola vill fá Isco frá Real Madrid til Manchester City næsta sumar og viðræður hafa hafist. (AS)
Juventus ætlar að bjóða 125 milljónir punda til að fá Paul Pogba frá Manchester United. (Star)
Jose Mourinho stjóri United reynir að koma í veg fyrir að yfirmaður knattpsyrnumála verði ráðinn. (Telegraph)
Manchester United þarf að borga Jose Mourinho 24 milljónir punda ef hann verður rekinn fyrir loka tímabils. (Record)
Enska úrvalsdeildin vill funda með svörtum leikmönnum til að fá hugmyndir að því hvernig kynþáttaníð verður stoppað. (Mirror)
Jack Wilshere gæti misst af öllu tímabilinu með West Ham. (The Sun)
Juventus fundaði með Mino Raiola um að framlengja samning Moise Kean en einnig ti að skoða stöðuna á Paul Pogbaog Matthijs de Ligt varnarmanni Ajax. (Sky)
Arsenal vill fá Nicolas Pepe kantmann Lillle en Tottenham og Chelsea hafa einnig áhuga. (Star)