Philippe Lamboley, umboðsmaður Anthony Martial segir skjólstæðing sinn vera langt því frá að skrifa undir nýjan samning við Manchester United.
United nýtti sér ákvæði í samningi Martial í gær og er hann nú bundinn félaginu til ársins 2020.
Martial hefur verið besti leikmaður United á þessu mjög svo erfiða tímabili.
Ed Woodward, stjórnarformaður United hefur gert Martial nokkur tilboð í vetur en þeim hefur öllum verið hafnað.
,,Ég er mjög vongóður um að viðræður verði á endanum jákvæðar,“ sagði Philippe Lamboley.
,,Þeir hafa sent okkur nokkur tilboð sem hafa verið langt frá okkar væntingum, þeir byrjuðu mjög langt frá okkar væntingum. Það er langur vegur frá samkomulagi.“