Steven Gerrard, stjóri Rangers, hefur tjáð sig um brottrekstur Jose Mourinho frá Manchester United.
Mourinho var fyrr í dag rekinn frá enska félaginu, eitthvað sem kom ekki mörgum á óvart eftir slæmt gengi.
Gerrard talar þó ekki illa um Mourinho sem vann til að mynda Evrópudeildina á Old Trafford.
Mourinho er sá þriðji sem stýrir United frá árinu 2013 en hinir voru þeir David Moyes og Louis van Gaal.
,,Hann er sigurvegari er það ekki? Hvernig get ég setið hérna og talað illa um Jose Mourinho?“ sagði Gerrard.
,,Hann er raðsigurvegari, hann vinnur alls staðar. Hann var rekinn frá United en vann þó nokkra bikara. Hann var sá besti eftir Sir Alex Ferguson.“