Borussia Dortmund tapaði óvænt í þýsku Bundesligunni í kvöld er liðið heimsótti Dusseldorf.
Dortmund var eina taplausa lið deildarinnar fyrir leiki kvöldsins og var á toppnum með níu stiga forskot.
Borussia Monchengladbach vann Nurnberg 2-0 og minnkaði forskot Dortmund niður í sex stig.
Dusseldorf lyfti sér úr fallsæti með óvæntum 2-1 sigri og var þetta annar sigur liðsins í röð.
Dortmund hafði spilað 15 leiki án þess að tapa en þrátt fyrir að hafa verið 74 prósent með boltann tókst liðinu ekki að koma í veg fyrir tap kvöldsins.
Alfreð Finnbogason lék 61 mínútu fyrir lið Augsburg á sama tíma er liðið gerði 2-2 jafntefli við Hertha Berlin.
Alfreð lagði upp annað mark Augsburg í leiknum en öll mörk leiksins komu í fyrri hálfleik.