fbpx
Föstudagur 19.apríl 2024
433

Þetta eru þrjár ástæður þess að Mourinho verður ekki rekinn

Hörður Snævar Jónsson
Mánudaginn 17. desember 2018 15:30

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Jose Mourinho stjóri Manchester United verður ekki rekinn úr starfi sínu í bráð. Þetta fullyrðir Guardian og fleiri miðlar segja frá.

Manchester United er í slæmri stöðu eftir tap gegn Liverpool á Anfield í gær. Liðið þarf kraftaverk til að ná Meistaradeildarsæti á þessari leiktíð, spilamennska liðsins hefur verið slök.

Mourinho er á sínu þriðja tímabili með liðið og eftir ágætis tímabil í fyrra, hefur allt hrunið í ár.

Stjórn Manchester United ætlar samt ekki að reka hann í bili samkvæmt Guardian, stjórnin trúir því að Mourinho getir snúið þessu við.

Mirror heldur því fram að þrjár ástæður séu fyrir því að Mourinho muni ekki verða rekinn strax.

Fyrsta ástæðan:
Stjórn Manchester United telur að enn sé möguleiki á að Mourinho komi liðinu í Meistaradeildarsæti.

Önnur ástæðan:
Stjórnin telur ekki rétta manninn í boði til að taka við, Michael Carrick sem hefur litla reynslu yrði því að taka við af Mourinho.

Þriðja ástæðan:
Zinedine Zidane vill taka við liðinu en stjórn Manchester United telur hann ekki vera rétta manninn.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

433Sport
Fyrir 11 klukkutímum

Setur glæsilegt hús sitt á sölu – Vill fá 800 milljónir fyrir það

Setur glæsilegt hús sitt á sölu – Vill fá 800 milljónir fyrir það
433Sport
Fyrir 12 klukkutímum

Ivan Toney sagður gera kröfu um að þéna meira en Bruno

Ivan Toney sagður gera kröfu um að þéna meira en Bruno
433Sport
Fyrir 14 klukkutímum

Var agndofa þegar Schweinsteiger lýsti framkomu Mourinho hjá United – „Mér var bara sparkað út úr klefanum“

Var agndofa þegar Schweinsteiger lýsti framkomu Mourinho hjá United – „Mér var bara sparkað út úr klefanum“
433Sport
Fyrir 15 klukkutímum

Endar Martial hjá liði í London?

Endar Martial hjá liði í London?
433Sport
Fyrir 18 klukkutímum

Ótrúleg myndbönd birtast – Stútuðu knæpu eftir gleðitíðindin og einn girti niðrum sig í miðri ræðu

Ótrúleg myndbönd birtast – Stútuðu knæpu eftir gleðitíðindin og einn girti niðrum sig í miðri ræðu
433Sport
Fyrir 19 klukkutímum

Leikmenn Arsenal í rusli

Leikmenn Arsenal í rusli