Barcelona er byrjað að skoða það að fylla skarð Luis Suarez næsta sumar en framherjinn er 32 ára gamall.
Suarez hefur verið í rúm fjögur ár hjá Barcelona en hann kom til félagsins frá Liverpool.
Byrjað er að hægjast á Suarez og vill Barcelona finna arftaka hans sem fyrst.
Sjö leikmenn eru sagðir á óskalista Barcelona en félagið vill ekki lenda í því að vera án framherja sem raðar inn mörkum.
Óskalistinn:
Nicolas Pepe (Lille)
Kasper Dolberg (Ajax)
Timo Werner (RB Leipzig)
Luka Jovic (Benfica)
Krzysztof Piatek (Genoa)
Max Gomez (Celta Vigo)
Andre Silva (AC Milan)