fbpx
Föstudagur 26.apríl 2024
433

Mourinho reynir að kenna Moyes og Van Gaal um

Hörður Snævar Jónsson
Mánudaginn 17. desember 2018 09:05

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Liverpool endurheimti toppsætið í ensku úrvalsdeildinni í gær er liðið fékk Manchester United í heimsókn. Leikurinn á Anfield var mjög fjörugur en fyrsta mark leiksins skoraði Sadio Mane fyrir heimamenn eftir góða sendingu Fabinho.

United tókst þó að jafna fyrir lok fyrri hálfleiks er Jesse Lingard kom boltanum í netið eftir mistök Alisson Becker í marki Liverpool. Í síðari hálfleik kom Xherdan Shaqiri við sögu hjá Liverpool og átti hann eftir að breyta leiknum.

Shaqiri skoraði tvö mörk með stuttu millibili og náði að tryggja Liverpool 3-1 sigur á erkifjendum sínum. Bæði skot Shaqiri fóru af leikmanni United og í netið en útlit er fyrir að hann fái bæði mörkin skráð á sig.

United liðið hleypur ekki jafn mikið og bestu liðin og Mourinho á útskýringu á því.

,,Við erum í miklum vandræðum með líkamlega hlutann,“ sagði Mourinho.

,Við erum með marga leikmenn sem eru mikið meiddir, þeir eru alltaf meiddir og það er ekki hjá mér, þetta byrjaði á undan.“

Það var þá sem Mourinho ákvað að reyna að kenna Louis Van Gaal og David Moyes um stöðuna.

,,Ef þú skoðar tölfræði Van Gaal og Moyes, þá voru leikmenn meiddir og þegar þú ert mikið meiddur, þá er erfitt að byggja upp styrk og þol.“

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

433Sport
Fyrir 8 klukkutímum

Starfið í töluverðri hættu eftir niðurlægingu vikunnar

Starfið í töluverðri hættu eftir niðurlægingu vikunnar
433Sport
Fyrir 9 klukkutímum

Fær óvænt tækifærið aðeins 34 ára gamall

Fær óvænt tækifærið aðeins 34 ára gamall
433Sport
Fyrir 11 klukkutímum

Hvetur United til að horfa í óvænta átt: Harðhausinn aftur heim? – ,,Gæti smellpassað“

Hvetur United til að horfa í óvænta átt: Harðhausinn aftur heim? – ,,Gæti smellpassað“
433Sport
Fyrir 12 klukkutímum

Stórstjarnan plataði alla með nýrri mynd: Margir voru áhyggjufullir – Sjáðu svakalegan mun

Stórstjarnan plataði alla með nýrri mynd: Margir voru áhyggjufullir – Sjáðu svakalegan mun
433Sport
Fyrir 16 klukkutímum

Knattspyrnusambandið íhugar að banna félögum alfarið að gera þetta

Knattspyrnusambandið íhugar að banna félögum alfarið að gera þetta
433Sport
Fyrir 17 klukkutímum

Gengi hans á Ítalíu gæti haft áhrif á Manchester United

Gengi hans á Ítalíu gæti haft áhrif á Manchester United