Crystal Palace vann sterkan sigur í ensku úrvalsdeildinni í gær er liðið fékk Leicester City í heimsókn.
Það var miðjumaðurinn Luka Milovojevic sem skoraði eina mark leiksins með fallegu skoti í fyrri hálfleik.
Leikurinn sjálfur var ekki sá skemmtilegasti en stigin þrjú eru mikilvæg fyrir Palace sem hefur verið í basli undanfarið.
Wilfried Zaha var ekki með liði Palace í gær en hann er án efa mikilvægasti leikmaður liðsins.
Þetta var í fyrsta sinn í tvö ár sem Palace tekst að vinna leik þar sem Zaha spilar ekki. Það er ótrúleg staðreynd.
Zaha er að glíma við smávægileg meiðsli og gat ekki tekið þátt en Palace tókst þrátt fyrir það að næla í sigur.