Það var boðið upp á fínasta leik á Anfield í dag er Liverpool fékk lið Manchester United í heimsókn.
Liverpool gat komist á toppinn með sigri í dag og það tókst að lokum eftir innkomu Xherdan Shaqiri.
Staðan var 1-1 er Shaqiri kom inná sem varamaður og skoraði hann tvö mörk með stuttu millibili í 3-1 sigri.
Tölfræðin úr leiknum er ansi athyglisverð en Liverpool átti 36 skot að marki United og 11 voru á rammann.
United tókst ekki að sækja eins mikið og skaut að marki Liverpool sex sinnum og hitti rammann tvisvar.
Tölfræðina má sjá hér.