fbpx
Föstudagur 26.apríl 2024
433

Klopp: Þetta var svo verðskuldað – Hundsaði ráð frá aðstoðarmönnum

Victor Pálsson
Sunnudaginn 16. desember 2018 18:34

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Jurgen Klopp, stjóri Liverpool, gat brosað í kvöld eftir 3-1 sigur sinna manna á Manchester United.

Xherdan Shaqiri kláraði United í leik kvöldsins en hann skoraði tvö mörk fyrir liðið í síðari hálfleik eftir að hafa komið inná.

Klopp fékk skilaboð um að setja Shaqiri fyrr inná en hann ákvað að bíða aðeins með það sem skilaði sér.

,,Frammistaðan var algjörlega mögnuð. Við sáum lið United og við vissum af gæðunum sem eru þarna,“ sagði Klopp.

,,Þeir eru mjög skipulagðir með fimm til baka og við vissum að þetta yrði erfitt en planið var að taka áhættur og sýna hugrekki.“

,,Þetta var bara frábært og svo verðskuldað. Þetta er lið í topp, topp klassa og ég elska það.“

,,Þeir [þjálfararnir] sögðu mér að segja Shaqiri inná fyrr en svo kom hann inná og tímasetningin var ekki svo slæm.“

,,Ég held að þeir hafi ekki viljað vera svo varnarsinnaðir en við hleyptum þeim ekki út. Þeir áttu sín augnablik en í heildina var þetta frábært.“

,,Alisson gerði sín önnur mistök en völlurinn var blautur og Lingard var þarna. Þetta var óheppni en við héldum áfram.“

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

433Sport
Fyrir 14 klukkutímum

Staðfestir að hann sé ekki hættur – Endurkoma á næstunni

Staðfestir að hann sé ekki hættur – Endurkoma á næstunni
433Sport
Fyrir 14 klukkutímum

Gætu neyðst til að selja vonarstjörnuna í sumar vegna fjárhagsvandræða

Gætu neyðst til að selja vonarstjörnuna í sumar vegna fjárhagsvandræða
433Sport
Fyrir 17 klukkutímum

Hraunaði yfir eigin leikmann í beinni útsendingu og lét allt flakka: Vinsæll en á ekki skilið mínútur – ,,Brást okkur öllum“

Hraunaði yfir eigin leikmann í beinni útsendingu og lét allt flakka: Vinsæll en á ekki skilið mínútur – ,,Brást okkur öllum“
433Sport
Fyrir 18 klukkutímum

Væri enn bestur í deildinni 80 ára gamall

Væri enn bestur í deildinni 80 ára gamall
433Sport
Fyrir 22 klukkutímum

Sjáðu stórkostlegt tilþrif Mbappe í gær

Sjáðu stórkostlegt tilþrif Mbappe í gær
433Sport
Fyrir 22 klukkutímum

Guardiola: ,,Þurfum að skoða það í lok tímabils“

Guardiola: ,,Þurfum að skoða það í lok tímabils“