fbpx
Fimmtudagur 18.apríl 2024
433

Keane segir bless við Pogba – Spila eins og miðlungslið

Victor Pálsson
Sunnudaginn 16. desember 2018 21:20

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Paul Pogba verður ekki leikmaður Manchester United á næstu leiktíð ef marka má orð fyrrum leikmanns félagsins, Roy Keane.

Keane var í setti Sky Sports í dag er United mætti Liverpool í ensku úrvalsdeildinni og tapaði 3-1.

Pogba spilaði ekki mínútu í leiknum í dag en hann er ekki fyrstur á blað hjá Jose Mourinho þessa stundina.

,,Dagar Paul Pogba hjá Manchester United eru taldir, hann verður ekki seldur í janúar en hann mun horfa annað,“ sagði Keane.

,,Þetta er ekkert stórmál, hann hefur yfirgefið United áður. Ef þú værir frá tunglinu og vissir ekkert um fótbolta þá myndirðu segja að United væri miðlungslið.“

,,Það er ekki meira en það. Þeir eru Manchester United frá árinu 1980. Þeir geta staðið sig ágætlega í útsláttarkeppnum.“

Keane var svo spurður út í það hvort United gæti endað í fjórða sætinu og var svar hans: ,,Ekki séns.“

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

433Sport
Fyrir 13 klukkutímum

Pétur spurður út í Amöndu – „Það er undir henni komið“

Pétur spurður út í Amöndu – „Það er undir henni komið“
433Sport
Fyrir 13 klukkutímum

„Það er bara ágætt að vera spáð sjöunda sæti til að geta komið fólki á óvart“

„Það er bara ágætt að vera spáð sjöunda sæti til að geta komið fólki á óvart“
433Sport
Fyrir 16 klukkutímum

Bjarki lánaður frá Víkingi á ný

Bjarki lánaður frá Víkingi á ný
433Sport
Fyrir 16 klukkutímum

Spá fyrirliða, þjálfara og formanna – Val spáð titlinum í enn eitt skiptið

Spá fyrirliða, þjálfara og formanna – Val spáð titlinum í enn eitt skiptið
433Sport
Fyrir 20 klukkutímum

Mikið áhyggjuefni fyrir Arteta í aðdraganda leiksins í kvöld

Mikið áhyggjuefni fyrir Arteta í aðdraganda leiksins í kvöld
433Sport
Fyrir 20 klukkutímum

Sjáðu hvað Mbappe gerði í gær sem ekki allir tóku eftir í beinni útsendingu

Sjáðu hvað Mbappe gerði í gær sem ekki allir tóku eftir í beinni útsendingu
433Sport
Í gær

Víkingur er meistari meistaranna eftir sigur í vítaspyrnukeppni – Sjáðu mörkin

Víkingur er meistari meistaranna eftir sigur í vítaspyrnukeppni – Sjáðu mörkin
433Sport
Í gær

Sjáðu myndbandið: Xavi fékk rautt spjald fyrir hegðun sína í kvöld

Sjáðu myndbandið: Xavi fékk rautt spjald fyrir hegðun sína í kvöld