Jose Mourinho mun sjá sína menn í Manchester United spila gegn Liverpool í ensku úrvalsdeildinni í dag.
Mourinho og félgar mæta á Anfield en Liverpool er taplaust fyrir leikinn og getur endurheimt efsta sæti deildarinnar.
Mike Keegan, blaðamaður Daily Mail, segir að endalokin séu að nálgast ef Mourinho tapar þessum leik illa.
Eins og flestir vita er mikill rígur á milli þessara liða og gæti stórtap verið síðasti naglinn í kistu Mourinho.
,,Ef hann tapar á sunnudaginn er ekki víst að það sé hægt að snúa aftur. Ef hann tapar stórt þá er endirinn að nálgast,“ skrifaði Keegan.
,,Þetta er Liverpool og sama hvað Mourinho segir á blaðamannafundum, þar sem hann minnir á gamla sigra, þá verður mjög erfitt fyrir stuðningsmenn að kyngja stóru tapi.“
,,Að gefast upp gegn City var eitt en eins og stuðningsmenn United munu segja þér þá er Liverpool óvinur númer eitt.“
,,Ef Jurgen Klopp og félagar niðurlægja United þá verður ekki hægt að finna felustað.“