Gary Cahill, fyrirliði Chelsea, gæti vel yfirgefið félagið í janúar en hann fær lítið að spila.
Cahill er ekki inni í myndinni hjá Maurizio Sarri og gæti leitast eftir því að semja við nýtt félag á næsta ári.
Samkvæmt fregnum Sky Sports þá hefur Fulham mikinn áhuga á Cahill sem er búsettur í London.
Það gæti reynst öflugur kostur fyrir varnarmanninn en Fulham er eins og Chelsea staðsett í London.
Óvíst er þó hvort að Fulham geti borgað laun Cahill sem fær mjög vel borgað á Stamford Bridge.