Torino 0-1 Juventus:
0-1 Cristiano Ronaldo
Það var Cristiano Ronaldo sem reyndist hetja Juventus í kvöld er liðið mætti Torino í grannaslag.
Juventus er taplaust á toppi ítölsku deildarinnar eftir 16 umferðir en liðið hefur unnið 15 af þeim leikjum og gert eitt jafntefli.
Útisigur var niðurstaðan í kvöld en Ronaldo skoraði eina mark leiksins úr vítaspyrnu í síðari hálfleik.
Simone Zaza gerðist sekur um slæm mistök er hann gaf boltann til baka á markvörð sinn sem braut á Mario Mandzukic og vítaspyrna réttilega dæmd.
Ronaldo hefur oft tekið betri spyrnur en markvörður Torino komst í boltann sem endaði þó í netinu.