Real Madrid 1-0 Rayo Vallecano
1-0 Karim Benzema(13′)
Real Madrid fékk heimaleik í spænsku úrvalsdeildinni í kvöld en liðið spilaði við Rayo Vallecano.
Vallecano var fyrir leikinn í næst neðsta sæti deildarinnar en Real sat í fjórða sætinu.
Það var aðeins eitt mark skorað á Santiago Bernabeu en það gerði Karim Benzema fyrir heimamenn.
Real svaraði því tapinu í miðri viku er CSKA Moskva vann sannfærandi 3-0 sigur í Meistaradeildinni.
Real lyfitr sér upp í þriðja sæti deildarinnar með sigrinum og er tveimur stigum á eftir toppliði Barcelona.