Það verður ekkert gefið eftir þegar sigursælasta lið ensku úrvalsdeildarinnar heimsækir það besta í dag, á morgun. Manchester United fer í heimsókn á Anfield á morgun og mætir þar Liverpool.
Liverpool er á toppi deildarinnar á meðan United er að berjast rétt fyrir ofan miðja deild. Um er að ræða einn skemmtilegasta grannaslag á Englandi og verður ekkert gefið eftir.
Marcus Rashford sóknarmaður Manchester United kveðst ekki vera smeykur fyrir leiknum, hann telur United eiga sömu möguleika og Liverpool.
,,Mourinho er öðruvísi fyrir þennan leik, eins og við allir. Það er sérstök stemming í kringum þetta, fólk getur aldrei falið þannig,“ sagði Rashford.
,,Mourinho er sigurvegari, hann fer í þennan leik og hugsar bara um sigur. Hvernig við getum unnið, þrjú stig eru það sem skipta máli.“