Jose Mourinho, stjóri Manchester United, er að skemmta sér í þjálfun meira í dag en fyrir nokkrum árum.
Þetta sagði Mourinho í samtali við Sky Sports en hann hefur gaman að áskoruninni þar sem gengi United hefur ekki verið frábært í vetur.
Mourinho og félagar fá erfitt verkefni á morgun er liðið heimsækir Liverpool á Anfield.
,,Já ég elska þetta meira en áður því þetta er erfiðara í dag en það var,“ sagði Mourinho.
,,Þetta hefur ekki gengið eins vel og við vonuðumst eftir. Ég spáði því þó í sumar að tímabilið yrði erfitt fyrir okkur.“
,,Ég fann það í sumar að ná öðru sæti á síðustu leiktíð var frábær árangur og fólk hélt það að því við enduðum þar þá myndum við reyna að gera betur næst og verða meistarar.“
,,Ég horfði ekki þannig á stöðuna, að ná öðru sætinu var stórkostlegur árangur hjá okkur öllum.“