Luka Modric og Antonio Conte eru mennirnir sem eigendur Inter vilja fá til félagsins og ná árangri.
Modric var á óskalista Inter í sumar og hafði áhuga á að fara til félagsins.
Hann hefur ekki framlengt samning sinn við Real Madrid sem rennur út árið 2020.
Conte er án starfs eftir að Chelsea rak hann í sumar en Inter vill koma sér í fremstu röð.
Luiciano Spalletti gæti misst starfið sitt eftir að honum mistókst að koma Inter áfram í Meistaradeildinni.