Gylfi Þór Sigurðsson er að sjálfsögðu í byrjunarliði Everton er liðið heimsækir Manchester City klukkan 12:30 í ensku úrvalsdeildinni.
Everton hefur spilað vel í vetur og sömu sögu er að segja af City sem tapaði þó um síðustu helgi gegn Chelsea.
Gylfi hefur verið besti leikmaður Everton á tímabilinu. Byrjunarliðin eru hér að neðan.
Manchester City: Ederson, Walker, Gündogan, Laporte, Delph, Sané, Silva, Fernandinho (C), Mahrez, Otamendi, Jesus
Everton: Pickford, Coleman, Keane, Mina, Zouma, Digne, Gomes, Bernard, Sigurdsson, Calvert-Lewin, Richarlison.