Það vakti athygli fyrr á árinu þegar varnarmaðurinn Andreas Granqvist var orðaður við Manchester United.
Granqvist spilaði með sænska landsliðinu á HM í sumar og stóð sig vel en hann er á mála hjá Helsingborg í heimalandinu.
United var sagt vilja fá Granqvist í janúarglugganum en hann er 33 ára gamall og hefur áður stopað stutt hjá Wigan á Englandi.
Varnarmaðurinn efast þó um að hann sé á leið til United og býst ekki við að fara í janúar.
,,Ég er 99,9 prósent viss um það að við getum drepið þessar sögusagnir hér og nú,“ sagði Granqvist.
,,Það yrði ansi magnað en ég held að þetta gerist ekki. Ég veit heldur ekki hvort ég vilji það, ég vil vera hjá Helsingborg.“