Það hefur lítið gengið hjá liði Southampton á tímabilinu og var Mark Hughes rekinn frá félaginu fyrr í mánuðinum.
Það var Þjóðverjinn Ralph Hasenhuttl sem tók við af Hughes en hann vann síðast hjá RB Leipzig í heimalandinu.
Hasenhuttl reynir að vinna stuðningsmenn á sitt band og hefur boðið þeim fría drykki ef þeir mæta á leik gegn Arsenal á morgun.
Það hefur gengið mjög illa á St. Mary’s undanfarnar vikur en Southampton vann síðast leik á heiamvelli í apríl.
,,Þú verður að byggja upp orðsporið. Þetta er eins og bankareikningur – ef þú tekur alltaf pening út þá er hann stundum tómur,“ sagði Hasenhuttl.
,,Nú eigum við pening til að setja inn. Við reynum að fjárfesta í einhverju og sýna þeim að við erum að leggja okkur fram í leikjum.“