Það eru ekki margir sem nenntu að horfa á leik Arsenal og Qarabag í Evrópudeildinni í kvöld.
Leikurinn fór fram á Emirates vellinum í London og hafði Arsenal betur með einu marki gegn engu.
Nokkrar stjörnur fengu frí hjá Arsenal í kvöld en liðið var nú þegar komið í 32-liða úrslit keppninnar.
Mætingin á völlinn í kvöld var virkilega slök og var mjög mikið af auðum sætum.
Stemningin var ekki frábær í sigrinum en Arsenal er nú taplaust í 22 leikjum í röð sem er magnaður árangur.
Hér má sjá myndir af mætingu kvöldsins.