Jose Mourinho, stjóri Manchester United, var pirraður í gær eftir 2-1 tap gegn Valencia í Meistaradeildinni.
United lenti 2-0 undir á Mestalla vellinum áður en Marcus Rashford lagaði stöðuna fyrir gestina.
United kemst í 16-liða úrslit þrátt fyrir tapið en Portúgalinn var ekki of hrifinn af sínum mönnum.
,,Liðið mitt bætti leik sinn þegar ég gerði breytingar sem ég vildi ekki gera sem er pirrandi,“ sagði Mourinho.
,,Ég lærði ekkert af þessum leik. Það er ekkert sem gerðist sem kom mér á óvart.“
,,Okkar verki er lokið í erfiðum riðli. Ég tel ekki að við höfum verið frábærir í riðlakeppninni en við gerðum nóg.“