Graeme Souness, goðsögn hjá Liverpool, var í dag beðinn um að velja á milli þeirra Mohamed Salah og Eden Hazard.
Salah hefur verið frábær fyrir Liverpool undanfarið ár en hann samdi við félagið sumarið 2017.
Hazard hefur verið á mála hjá Chelsea frá árinu 2012 og hefur lengi verið einn mikilvægasti leikmaður liðsins.
Souness segir að Salah sé enn ekki kominn í sama flokk og aðrir fyrrum leikmenn Liverpool en hefur þó fulla trú á Egyptanum.
,,Hann er frábær en þetta er bara hans annað ár. Spurðu mig aftur eftir fimm ár,“ sagði Souness.
,,Þegar þú talar um goðsagnir Liverpool þá eru það leikmenn sem hafa unnið allt. Frábærir samherjar og frábærir markaskorarar.“
,,Þetta er bara annað tímabil Salah en ég held að hann sé með gæðin til að komast í þennan hóp.“
,,Ef ég gæti bara valið einn þá myndi ég velja Hazard. Salah er betri markaskorari en Hazard er betri leikmaður heilt yfir.“