Olivier Giroud reyndist hetja Chelsea í kvöld er liðið mætti MOL Vidi í Evrópudeildinni.
Giroud elskar fátt meira en að skora mörk og komst á blað í 2-2 jafntefli gegn ungverska liðinu.
Giroud jafnaði metin fyrir Chelsea í síðari hálfleik en hann skoraði þá mark beint úr aukaspyrnu.
Það er eitthvað sem Frakkinn er alls ekki þekktur fyrir en hann fær aldrei að taka spyrnur liðsins.
Margir fengu þó frí hjá Chelsea í kvöld og vildi Giroud fá tækifæri og sannaði hæfileika sína.
Markið má sjá hér
Beautiful free-kick from Giroud! ? #CFC #KTBFFH #VIDCHE
— CFC-Blues.com (@CFCBlues_com) 13 December 2018