Jurgen Klopp, stjóri Liverpool hefur áhyggjur af varnarlínu sinni fyrir stórleikinn við Manchester United á sunnudag.
Þrátt fyrir að Liverpool sé miklu sterkara lið í dag eru leikir þessara félaga alltaf sérstakir, allt getur gerst.
Joel Matip vanrarmaður Liverpool meiddist á öxl gegn Napoli í gær þegar Liverpool tryggði sig áfram í Meistaradeildinni.
Matip kláraði leikinn en eftir leik var hann sendur á sjúkrahús í myndatöku.
Trent Alexander-Arnold bakvörður Liverpool meiddist á fæti í leiknum og varð að fara af velli.