Tottenham mun spila við Manchester United í ensku úrvalsdeildinniu þann 13. janúar á næsta ári.
Tottenham vonaðist eftir því að sá leikur gæti farið fram á nýjum heimavelli félagsins sem hefur lengi verið í vinnslu.
Félagið hefur nú hins vegar staðfest það að völlurinn verði ekki klár og verður leikurinn spilaður á Wembley.
Tottenham hefur notað Wembley undanfarið ár til að spila heimaleiki sína og verður því engin breyting á því.
Enn eina ferðina er óvissa í kringum hvenær völlurinn verður tilbúinn og hvenær fyrsti leikurinn geti farið fram á Tottenham Hotspur Stadium.