Jose Mourinho stjóri Manchester United mun gera talsvert af breytingum á byrjunarliði sínu gegn Valencia í kvöld.
United er komið áfram í Meistaradeildinni en allar líkur eru á að Juventus vinni riðilinn.
Mourinho ákvað því að skilja David De Gea, Nemanja Matic og fleiri eftir heima.
Paul Pogba, Andreas Pereira og fleiri byrja í kvöld, það hefur stjórinn staðfest.
Hér að neðan er líklegt byrjunarlið United.
Líklegt byrjunarlið United: Romero, Valencia, Bailly, Jones, Rojo; Fred, Pereira, Pogba; Mata, Lukaku, Lingard