Valencia er komið í 2-0 gegn Manchester United en liðin eigast við í riðlakeppni Meistaradeildarinnar.
United er komið áfram í 16-liða úrslit keppninnar en mun líklega enda í öðru sæti riðilsins.
Valencia var að skora sitt annað mark en þeir spænsku geta þakkað varnarmanninum Phil Jones fyrir það.
Jones skoraði mjög skrautlegt sjálfsmark en hann renndi boltanum framhjá Sergio Romero sem stóð í markinu.
Romero ætlaði að mæta sendingu leikmanns Valencia en Jones náði fyrst til boltanns og sá ekki hvar Argentínumaðurinn var staðsettur.