Leigubílasögurnar eru daglegur liður hér á 433.is. Í þessum lið er farið yfir helsta slúðrið og sögusagnirnar úr fótboltanum, aðallega úr bresku pressunni.
Félagaskiptaglugginn hefur lokað en það er samt alltaf fullt af sögum enda hætta erlend blöð aldrei að grafa upp sögurnar sem fljúga.
Hér má sjá pakka dagsins.
————
Eden Hazard hefur enn á ný sagt að hann gæti farið til Real Madrid og að hann viti ekki hvenær framtíð hans skýrist. (RMC)
AC Milan hefur staðfest að félagið hafi haft samband við Chelsea vegna Cesc Fabregas. (Standard)
Tottenham er komið í baráttu við Manchester Unitedum Dennis Man, tvítugan framherja frá Rúmeníu sem leikur með FCSB. (Sun)
Manchester United leiðir kapphlaupið um Tanguy Ndombele miðjumann Lyon en Barcelona, Manchester City og Tottenham hafa áhuga. (France Football)
Claudio Ranieri stjóri Fulham vill fá Islam Sliamni framherja Leicester í janúar. (Telegraph)
Fulham hefur líka áhuga á Pedro Martelo framherja Deportivo La Coruna. (Mail)
Ruben Neves gæti farið til Juventus en umboðsmaður hans reynir að koma því í gegn. (Calcio)
Leeds og Aston Villa vilja fá Karl Darlow markvörð Newcastle í næsta mánuði. (Sun)