Olympiakos í Grikklandi hefur rift samningi sínum við Yaya Toure miðjumann félagsins.
Þetta gerist þremur mánuðum eftir Yaya snéri aftur til félagsins en hann er 35 ára gamall.
Þessi 35 ára gamli miðjumaður yfirgaf Manchester City í sumar en þar átti hann frábæra tíma.
Pedro Martins þjálfari Olympiakos var ekki sáttur með framlag Yaya sem lék aðeins fimm leiki fyrir félagið.
Yaya hefur fjórum sinnum verið kjörinn besti knattspyrnumaður Afríku en hann er frá Fílabeinsströndinni.