Jose Mourinho, stjóri Manchester United, er að gera góða hluti á Old Trafford miðað við ummæli umboðsmanns hans á dögunum.
Jorge Mendes ræddi við fjölmiðla um framtíð Mourinho og sagði að félagið væri ánægt með hans störf og að hann væri ánægður í Manchester.
Mourinho var sjálfur spurður út í þessa yfirlýsingu í dag en hann hafði ekkert með hana að gera.
Portúgalinn segir að hann hafi ekki beðið Mendes um neitt og veit ekki hvaðan ummælin koma.
,,Þessi yfirlýsing hefur ekkert með mig að gera. Þetta er bara yfirlýsing, ekki mín yfirlýsing“ sagði Mourinho.
,,Nei, ég vissi ekki af þessu og mér er alveg sama um hana.“