Juventus á Ítalíu hefur mikinn áhuga á að fá miðjumanninn Paul Pogba í sínar raðir á nýjan leik.
Bæði enskir og ítalskir fjölmiðlar greina frá því en Pogba yfirgaf Juventus fyrir Manchester United árið 2016.
Hann er talinn vera að íhuga stöðu sína á Old Trafford og gæti freistað þess að snúa aftur til Ítalíu á næsta ári.
Samkvæmt nýjustu fregnum er Juventus tilbúið að láta United fá leikmann á móti og verður það líklega varnarmaður.
Jose Mourinho vill mikið fá varnarmann til félagsins í janúar en hann hefur kvartað yfir öftustu línu á tímabilinu.
Mehdi Benatia er sá leikmaður sem gæti farið á Old Trafford en hann er ekki fastamaður á Ítalíu.
Benatia er ekki talinn vera fyrsti kostur Mourinho en samkvæmt fregnum gæti hann komið ef Pogba ákveður að fara.