Heimir Hallgrímsson hefur verið ráðinn þjálfari Al-Arabi í Katar. Þetta hefur verið staðfest.
Heimir lét af störfum sem þjálfari íslenska karlalandsliðsins í sumar eftir frábæran árangur.
Heimir var þjálfari liðsins þegar liðið fór í fyrsta sinn á Evrópumótið og Heimsmeistaramótið.
Þessi öflugi þjjálfari vildi snúa aftur í þjálfun félagsliða en áður stýrði hann kvenna og karlaliði ÍBV.
Al-Arabi er í sjötta sæti af tólf liðum í úrvalsdeildinni í Katar en hlé verður gert á deildinni um jólin. Heimir stýrir því liðinu í tveimur leikjum áður en hlé verður gert.
Ótrúlegt þjálfaravelta hefur verið hjá Al-Arabi á síðustu tíu árum eða 20 þjálfarar hafa komið við sögu hjá félaginu.
Heimir geri samning til 2021 en kröfurnar eru talsverðar hjá félaginu.
Þjálfarar Al-Arabi frá 2008:
Adilson Fernandes
Zé Mario
Luiz Carlos
Uli Stielike
Péricles Chamusca
Paulo Silas
Abdullah Saad
Pierre Lechantre
Abdelaziz Bennij
Hassan Shehata
Abdelaziz Bennij
Uli Stielike
Paulo César Gusmão
Dan Petrescu
Daniel Carreño
Gianfranco Zola
Gerardo Pelusso
Oswaldo de Oliveira
Luka Bonaci
Hatem Almoadab